BETA
25.08.2026
Nýtt
Í nótt kl. 03:38 hófst jarðskjálftahrina um 26 km VSV við Eldey á Reykjaneshrygg, með skjálfta af stærð 4,1. Hafa tæplega 200 skjálftar mælst í hrinunni, þar af þrír yfir 3 að stærð, en virknin hefur minnkað mikið á síðustu klukkustundum. Síðast varð skjálfti stærri en 4 á þessum slóðum þann 23. mars sl. og í byrjun febrúar var kröftug hrina á svæðinu. Jarðskjálftahrinan er á Mið-Atlantshafshryggnum og hluti af flekahreyfingum þar og eru jarðskjálftahrinur algengar á þessum slóðum.

Virknin síðasta sólarhring

Stærðir skjálftar í hrinunni
Óvissa á staðsetningum svo langt úti í sjó er mikil, en nálægustu skjálftastöðvar eru í Eldey og við Reykjanestá, í um 20 og 35 km fjarlægð. Sérstaklega er erfitt að ákvarða dýpi fyrir skjálfta sem eru svona langt fyrir utan mælanetið okkar og festum við því dýpi á yfirförnum skjálftum þar í 10 km.