Mikilvægt að tryggja að vinna IPCC fylgi áætlun svo hún nýtist sem best

07.04.2026

Mikilvægt að tryggja að vinna IPCC fylgi áætlun svo hún nýtist sem best

Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) sat sinn 64. fund í Bankok í Taílandi dagana 24.-27. mars. Fulltrúi Íslands á fundinum lagði þar áherslu á mikilvægi þess að tryggja að settri tímaætlun nefndarinnar yrði fylgt svo að niðurstöður matsskýrslna hennar nýtist í alþjóðlegu loftslagsstarfi.

Mögulegar tafir á vinnu nefndarinnar

Á fundinum komu fram tillögur sem gætu leitt til þess að útgáfa skýrslna vinnuhópa í sjöunda matshring IPCC (AR7) tefjist. Gert er ráð fyrir að hnattrænu stöðumati Parísarsamningsins ljúki árið 2028, en fyrsta mati af því tagi lauk árið 2023. Við slíkt mat treysta aðildarríki IPCC að verulegu leyti á niðurstöður vinnuhópa IPCC svo unnt sé að taka upplýstar ákvarðanir.

Samkvæmt nýrri samantekt Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar er meðalhiti jarðar á tímabilinu 2015-2025 sá hæsti sem mælst hefur og er nú um 1,43 °C yfir meðalhita fyrir iðnbyltingu. Aukinn varmi í hafi hefur þegar leitt til tíðari hitabylgja í sjó og hækkunar sjávarborðs með tilheyrandi áhrifum á samfélög jarðar.

Þessar niðurstöður undirstrika brýna þörf á hröðum og markvissum aðgerðum sem kalla á aðgengi að traustum og uppfærðum vísindalegum gögnum. Skýrslur IPCC skipta sköpum þegar kemur að því að samræma þekkingu og styðja við stefnumótun í loftslagsmálum, bæði á alþjóðavettvangi og á landsvísu.

Það er lykilatriði, bæði fyrir Ísland og önnur aðildarríki, að vísindi IPCC séu tiltæk á réttum tíma. Án þeirra verður erfiðara að taka upplýstar ákvarðanir og bregðast við þeirri hættu sem loftslagsbreytingar fela í sér.

Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands og tengiliður Íslands við IPCC

Á fundinum lagði Ísland áherslu á mikilvægi þess að tryggja vísindalegan grundvöll loftslagsaðgerða en niðurstöður IPCC hafa verið lagðar til grundvallar alþjóðlegra samninga, svo sem Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar og Parísarsamningsins. Nauðsynlegt sé að svo verði áfram.

Fundurinn í Bangkok markaði ákveðin tímamót í starfi nefndarinnar þar sem Abdalah Mokssit lét af störfum sem ritari IPCC, en hann hefur gegnt því hlutverki frá árinu 2016. Honum voru færðar þakkir fyrir mikilvægt framlag til starfs nefndarinnar og fyrir að efla tengsl vísinda og stefnumótunar í loftslagsmálum á alþjóðavettvangi.

Næsti fundur IPCC verður haldinn í Addis Ababa í Eþíópíu í október 2026, þar sem meðal annars verður tekin afstaða til tímalínu sjöunda matshrings nefndarinnar.

64. fundur IPCC í Bangkok, mars 2026

Abdalah Mokssit og Anna Hulda Ólafsdóttir á 64. fundi IPCC 2026

Mögulegar tafir á vinnu nefndarinnar