BETA
Til þess að mæta þeim áskorunum sem afleiðingum loftslagsbreytinga fylgir er aðlögunar þörf. Afleiðingarnar fara vaxandi og því mikilvægt að aðlögun sé í brennidepli hjá ríki og sveitarfélögum.
Vísindanefnd um loftslagsbreytingar, 2023
Skipulag er eitt lykilstjórntækja til að vinna farsællega að aðlögun byggðar og samfélags og auka seiglu gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga.
Með vel ígrunduðu skipulagi er hægt að tryggja að ráðstafanir séu gerðar til að bregðast við væntum afleiðingum loftslagsbreytinga og að ákvarðanir taki mið af þekktri náttúruvá. Það er m.a. hægt að gera með því að:
Laga staðsetningu og útfærslu byggðar og nýtingu lands að fyrirséðum atburðum og breytingum, tryggja að uppbygging fari fram á öruggum svæðum og að ákvarðanir um staðsetningu og hönnun innviða stuðli að þoli, t.a.m. gagnvart auknu veðurálagi og áhættu.
Í landsskipulagsstefnu er sett fram samræmd stefna ríkisins um skipulagsmál á landsvísu og almenn sjónarmið til leiðbeiningar fyrir skipulagsgerð sveitarfélaga og aðra áætlanagerð um landnotkun og byggðaþróun. Eitt viðfangsefna gildandi landsskipulagsstefnu eru viðbrögð við loftslagsbreytingum þar sem fram kemur áhersla á að skipulag feli í sér stefnu um aðlögun að loftslagsbreytingum sem styrki viðnámsþrótt viðkomandi samfélags til langs tíma.
Þeim tilmælum stefnunnar sem beint er til sveitarfélaga um aðlögun snúa m.a. að greiningu áskorana, mati á áhættu og að tekið sé tillit til áhrifa loftslagsbreytinga, leitast við að draga úr álagi af þeim og/eða koma í veg fyrir hættu sem af þeim hlýst með viðeigandi skipulagsákvæðum. Þau geta t.a.m. falið í sér takmarkanir á uppbyggingu og landnotkun eða nýtingu lausna, t.a.m. sjálfbærra ofanvatnslausna til að milda og takast á við þessi áhrif á byggð.

Hagnýtur og aðgengilegur leiðarvísir fyrir sveitarfélög um aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga. Í leiðarvísinum eru fulltrúar sveitarfélaga leiddir skref fyrir skref í gegnum viðkvæmni- og áhættumat sveitarfélagsins vegna loftslagsbreytinga og mótun og forgangsröðun aðlögunaraðgerða sem byggir á því. Leiðarvísirinn leggur til leiðir sem byggja á samráði við íbúa og hagaðila.

Gagnvirk síða sem vekur notandann til umhugsunar um áhrif loftslagsbreytinga á nærsamfélagið og bendir á mögulegar leiðir til aðlögunar.

Vefsjá sem sýnir myndrænt við hverju búast má hvað varðar bryetingar á hitafari, úrkomu og sjávarstöðu til framtíðar miðað við mismikla losun gróðurhúsalofttegunda. Upplýsingar úr Atlasnum geta nýst við skipulagsgerð og greininu á viðkvæmni- og áhættu einstakra svæða eða geira...
Vegna breytinga í veðurfari, stækkunar byggðar og breyttra neysluvenja hefur aukið umfang ofanvatns orðið verulegt áskorunarefni í Grundarfirði og annar fráveitukerfið ekki álaginu með tilheyrandi vandamálum. Árið 2019 setti sveitarfélagið fram stefnu um náttúrumiðaðar lausnir í fráveitu innan þéttbýlisins, m.a. til að auka seiglu bæjarins gagnvart loftslagsbreytingum. Nú er í vinnslu rammahluti aðalskipulags fyrir blágrænar ofanvatnslausnir og á sama tíma hefur innleiðing hafist á uppsetningu blágrænna ofanvatnslausna víða um bæinn.

grundarfjorur