Skriður

24.09.26

18:11

Allir landshlutar

Fyrirvari

Viðvaranir um skriðuhættu byggja á bestu tiltæku gögnum og mati á veðri, svo sem úrkomu, leysingum og öðrum aðstæðum sem auka líkur á skriðuföllum.

Vikan 21. - 26. september

21.09.2026 | 11:15

Veðurspá gerir ráð fyrir rigningu og skúrum víða um land í vikunni. Á fimmtudag, 24. september, er spáð talsverðri úrkomu á Suðausturlandi og Austfjörðum. Enn er fremur hlýtt í veðri og úrkoman verður því í formi rigningar. Á föstudag heldur úrkoman áfram á Vestfjörðum og Ströndum, en veður fer kólnandi þar og því gæti snjóað til fjalla. Skriður og grjóthrun geta fallið í kjölfar úrkomunnar og þegar úrkomuákefðin er mest. Fylgist með viðvörunum.

Norðanverðir Vestfirðir (1)

Hætta á yfirborðshreyfingum vegna talsverðrar úrkomu

Frá fim. 24. sept.. kl. 18:00 - lau. 26. sept.. kl. 12:00

Í gildi

Veðurspár gera ráð fyrir talsverðri úrkomu frá hádegi fimmtudagsins 24. september fram á sunnudag, 27. september. Spár gera ráð fyrir rigningu á föstudag sem síðar breytist í snjókomu til fjalla, en óvissa er um úrkomuform neðar í hlíðum og þar með hvar snjólínan muni liggja. Búast má við vatnavöxtum í ám og lækjum. Yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, farvegabundnar aurskriður og jarðvegsskriður, geta átt sér stað skyndilega. Forðist að staldra við undir bröttum hlíðum og sýnið sérstaka aðgát á vegum. Fylgist með uppfærðum veðurspám, viðvörunum og tilkynningum frá yfirvöldum.

Strandir og vestanverður Húnaflói (1)

Hætta á yfirborðshreyfingum vegna talsverðrar úrkomu

Frá fim. 24. sept.. kl. 14:00 - lau. 26. sept.. kl. 12:00

Í gildi

Veðurspár gera ráð fyrir mikilli úrkomu á Ströndum frá hádegi fimmtudagsins 24. september fram á sunnudag, 27. september. Spár gera ráð fyrir rigningu á föstudag sem síðar breytist í snjókomu til fjalla, en óvissa er um úrkomuform neðar í hlíðum og þar með hvar snjólínan muni liggja. Búast má við vatnavöxtum í ám og lækjum. Yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, farvegabundnar aurskriður og jarðvegsskriður, geta átt sér stað skyndilega. Forðist að staldra við undir bröttum hlíðum og sýnið sérstaka aðgát á vegum. Fylgist með uppfærðum veðurspám, viðvörunum og tilkynningum frá yfirvöldum.

Sunnanverðir Austfirðir (1)

Hætta á yfirborðshreyfingum vegna talsverðrar úrkomu

Frá fim. 24. sept.. kl. 06:00 - fös. 25. sept.. kl. 14:00

Í gildi

Veðurspáin gerir ráð fyrir talsverðri úrkomu frá aðfaranótt fimmtudags 24. september fram á föstudag 25. september. Vatnavextir geta orðið í ám og lækjum og yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, farvegabundnar aurskriður og jarðvegsskriður, geta átt sér stað með litlum sem engum fyrirvara. Forðist að dvelja við undir bröttum hlíðum og sýnið sérstaka aðgát á vegum.

Suðausturland (1)

Hætta á skriðum vegna mjög mikillar úrkomu

Frá fim. 24. sept.. kl. 04:00 - fös. 25. sept.. kl. 16:00

Í gildi

Veðurspár gera ráð fyrir talsverðri úrkomu frá fimmtudegi 24. september fram á föstudag 25. september. Mest uppsöfnuð úrkoma er væntanleg á svæðinu, einkum í Öræfum og nærri Vatnajökli. Vatnavextir geta orðið í ám og lækjum og yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, farvegabundnar aurskriður og jarðvegsskriður, geta átt sér stað með litlum sem engum fyrirvara. Forðist að dvelja við undir bröttum hlíðum og sýnið sérstaka aðgát á vegum.

Suðurland og innsveitir Suðurlands (1)

Hætta á yfirborðshreyfingum vegna talsverðrar úrkomu

Frá fim. 24. sept.. kl. 02:00 - fös. 25. sept.. kl. 20:00

Í gildi

Veðurspár gera ráð fyrir talsverðri úrkomu frá aðfaranótt fimmtudags 24. september fram á föstudag 25. september. Mest úrkoma verður við jökla á borð við Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul. Vatnavextir geta orðið í ám og lækjum og yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, farvegabundnar aurskriður og jarðvegsskriður, geta átt sér stað með litlum sem engum fyrirvara. Forðist að dvelja við undir bröttum hlíðum og sýnið sérstaka aðgát á vegum.

Miðhálendið (1)

Hætta á yfirborðshreyfingum vegna talsverðrar úrkomu

Frá fim. 24. sept.. kl. 02:00 - fös. 25. sept.. kl. 20:00

Í gildi

Veðurspár gera ráð fyrir talsverðri úrkomu frá aðfaranótt fimmtudags 24. september fram á föstudag 25. september. Mest úrkoma verður við jökla á borð við Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul. Vatnavextir geta orðið í ám og lækjum og yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, farvegabundnar aurskriður og jarðvegsskriður, geta fallið án mikils fyrirvara. Forðist dvöl undir bröttum hlíðum og sýnið sérstaka aðgát á ferðalögum.