20.02.2026
Nýtt
Snjógryfjur voru teknar í Skarðsdal, skíðasvæði Siglufjarðar, bæði á fimmtudag og föstudag, 19. og 20. febrúar. Gryfjurnar voru teknar á svipuðum stað, í u.þ.b. 450 m hæð og vestur- eða suðvesturvísandi brekku. Veik lög eru í snjónum, þau viðkvæmustu eru ofarlega. Á rúmlega 10 cm dýpi á lagmótum lausamjallar og snjós sem hefur skafið er grafið yfirborðshrím. Á u.þ.b. 50 cm dýpi er veikt lag með hagli. Heilt yfir virðist snjór á svæðinu þó smám saman vera að styrkjast.
Gryfjan 20. febrúar

Gryfjan 19. febrúar

Einnig var tekin gryfja 16. febrúar.