Aðgengi að jarðvísindagögnum

Aðgengi að jarðvísindagögnum

Opin gögn

EPOS-Ísland vinnur að því að veita opið aðgengi að jarðvísindagögnum og lýsigögnum frá Íslandi í samræmi við FAIR viðmið um opið aðgengi. Á vefþjónustum verkefnisins er hægt að nálgast gæðayfirfarin fjölþátta jarðvísindagögn og lýsigögn þeirra. Þar á meðal eru gögn úr jarðskjálftamælaneti Íslands, GNSS mælingar, eldfjallagögn, jarðfræðigögn og aðrar afleiddar afurðir sem nýtast rannsóknum, vöktun og fræðslu. Gögn í EPOS-Ísland eru gefin út samkvæmt Creative Commons afnotaleyfi, CC BY 4.0. Heimilt er að hlaða niður gögnum og nota þau áfram, að því gefnu að uppruna sé getið.