Um EPOS Ísland

Um EPOS Ísland

EPOS Ísland er samstarfsverkefni um uppbyggingu rannsóknarinnviða og gagnaþjónustu fyrir íslensk jarðvísindagögn. Markmiðið er að bæta aðgengi að gögnum og afurðum frá Íslandi, samræma framsetningu þeirra og tengja þau við samevrópska innviði EPOS.

EPOS Ísland hlaut sess á Íslenska vegvísinum um uppbyggingu rannsóknarinnviða árið 2021. Verkefnin á vegvísinum eru talin mikilvæg fyrir gæði í rannsóknum og njóta forgangs við úthlutun stærri styrkja úr Innviðasjóði.

Innan EPOS Ísland er unnið að því að byggja upp öflugar gagnaþjónustur sem veita opið aðgengi að mikilvægum jarðvísindagögnum og þjónustum frá Íslandi. Þessar þjónustur eru hluti af evrópsku samstarfi EPOS og styðja við rannsóknir, vöktun, náttúruvármat og fræðslu.

EPOS ERIC

EPOS ERIC er samevrópskt samstarf um rafræna innviði fyrir jarðvísindi. Þar eru annars vegar miðlægar kjarnaþjónustur sem tengja saman gögn og afurðir frá þátttökulöndum og hins vegar fagþjónustur sem byggja á sérhæfðum gögnum og þjónustum á mismunandi sviðum jarðvísinda.

Ísland hefur tekið þátt í uppbyggingu þriggja slíkra fagþjónusta: fagþjónustu fyrir eldfjallagögn, GNSS-gögn og nærsprungugögn. Stefnt er að frekari þátttöku í fleiri fagþjónustum eftir því sem innviðir og gagnasöfn þróast.

Framlag Íslands

Framlag Íslands til EPOS hefur hingað til falist í úttekt á helstu jarðvísindamælikerfum landsins og þeim gögnum og afurðum sem frá þeim koma. Einnig hefur verið unnið að gæðayfirferð gagna og lýsigagna, stöðlun gagna og uppbyggingu aðgengis að þeim.

Núverandi aðgengi að hluta þessara gagna er meðal annars í formi API-vefþjónustu á vef Veðurstofu Íslands. Það á til dæmis við um gögn og afurðir úr GNSS- og jarðskjálftanetum, sem og tiltekin gögn og reiknaðar afurðir um eldfjallaösku, eldfjallagas og dreifingu þeirra í andrúmslofti.

Gögn og þjónustur

Unnið er að því að efla aðgengi að fjölbreyttum jarðvísindagögnum frá Íslandi. Þar undir falla meðal annars:

  • jarðskjálftagögn og afurðir
  • GNSS-gögn og afurðir
  • eldfjallagögn og afurðir
  • jarðfræðikort
  • bergsýni og önnur sýni
  • ýmis jarðeðlisfræðileg og jarðefnafræðileg gögn

Markmiðið er að gera fleiri tegundir gagna aðgengilegar með samræmdum hætti og samkvæmt viðmiðum um opið og FAIR aðgengi.

Næstu skref

Með EPOS Ísland samstarfinu er unnt að halda áfram uppbyggingu og eflingu íslenskrar gagnaþjónustu. Það felur meðal annars í sér:

  • frekari gæðayfirferð og stöðlun gagna
  • uppbyggingu sterkari rafrænna innviða
  • tengingu við fleiri þjónustur innan EPOS ERIC
  • aukið opið aðgengi að gögnum sem enn eru ekki aðgengileg með samræmdum hætti

Til framtíðar er einnig stefnt að því að tengja við fleiri gagnaveitur og rannsóknarverkefni, þar á meðal gögn og afurðir sem kunna að verða til innan Krafla Magma Testbed, sem og önnur jarðvísindagögn sem nýtast rannsóknum og náttúruvármati.

Samstarfsaðilar

Verkefnið er leitt af Veðurstofu Íslands. Samstarfsaðilar í EPOS Ísland eru:

  • Veðurstofa Íslands
  • Háskóli Íslands
  • Náttúrufræðistofnun
  • ÍSOR – Íslenskar Orkurannsóknir

Hvers vegna skiptir þetta máli?

Íslensk jarðvísindagögn hafa mikið gildi á alþjóðavísu. Á Íslandi verða tíðir jarðskjálftar, eldgos og aðrir náttúruváratburðir sem veita mikilvæga innsýn í virkni jarðar. Aukið aðgengi að slíkum gögnum styður við rannsóknir á mörgum sviðum, bætir forsendur fyrir náttúruvármat og styrkir alþjóðlegt vísindasamstarf.