BETA
08.09.2026

Í gagnagátt EPOS má leita að jarðvísindagögnum frá Íslandi og öðrum Evrópulöndum. Þar eru meðal annars jarðskjálftagögn, GNSS-mælingar, jarðfræðikort, hættumatskort og upplýsingar um eldvirkni.
Hægt er að þrengja leitina eftir viðfangsefni, tímabili eða landsvæði. Notendur geta til dæmis afmarkað svæði á korti og fengið yfirlit yfir þær gagnaþjónustur sem ná til þess. Þegar þjónusta er valin birtast upplýsingar um gögnin, útgefanda þeirra, tímabil, landsvæði og afnotaleyfi.
Gögnin má skoða á korti, í töflu eða á grafi eftir því hvað við á. Einnig er hægt að hlaða þeim niður á þeim sniðum sem hver þjónusta býður upp á.