Fleiri leiðir til að skoða íslenska jarðfræði

08.09.2026

Fleiri leiðir til að skoða íslenska jarðfræði

alt=""

EPOS-Ísland er gátt að ýmsum sérhæfðum vefsjám og gagnasöfnum sem nýtast við rannsóknir, kennslu og fræðslu.

Á síðunni Aðrir innviðir er meðal annars hægt að opna Íslenska eldfjallavefsjá og skoða upplýsingar um virkar eldstöðvar landsins. Þar er einnig að finna Skjálftalísu, sem gerir notendum kleift að skoða jarðskjálftagögn á myndrænan hátt, og ljósmyndasafn Jarðvísindadeildar Háskóla Íslands með myndum úr íslenskum eldgosum.

Síðan vísar einnig á Evrópsku eldfjallavefsjána, upplýsingar um eldfjallavá á Reykjanesskaga og Iceland Volcanoes Supersite. Þannig má nota EPOS-Ísland sem upphafsstað þegar leitað er að kortum, ljósmyndum, mælingum eða öðrum upplýsingum um íslenska jarðfræði.