BETA
08.09.2026

Þau sem vilja nota íslensk jarðvísindagögn í eigin úrvinnslu, hugbúnaði eða rannsóknum geta sótt þau beint í gegnum opið API-viðmót EPOS-Ísland.
Í viðmótinu eru þjónusturnar flokkaðar eftir tegund gagna. Þar má meðal annars nálgast jarðskjálftalista og hristikort, upplýsingar um íslensk eldfjöll og eldgos, GNSS-gögn, VONA-tilkynningar, gögn um gosmökk og ýmis hættumatskort.
Við hverja þjónustu kemur fram hvaða leitarskilyrði eru í boði. Oft er hægt að velja tímabil, landsvæði eða tiltekið eldfjall og fá niðurstöður á JSON- eða GeoJSON-sniði. Viðmótið sýnir jafnframt hvernig fyrirspurnir eru settar fram og gerir notendum kleift að prófa þær áður en þær eru teknar inn í eigin kerfi.