13.02.2026
Málþingið, Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga – frá áskorunum til aðgerða, var haldið á Akureyri þann 12. febrúar 2026.
Viðburðurinn markaði lok tilraunaverkefnis um aðlögun sveitarfélaga að loftslagsbreytingum. Þar var kynnt fyrsta útgáfa hagnýts leiðarvísis um aðlögun sveitarfélaga að loftslagsbreytingum. Samhliða því var opnuð fyrsta útgáfa nýs vefsvæðis loftslagsþjónustu Veðurstofu Íslands.
Verkefnið sem um ræðir hefur staðið hefur yfir undanfarin ár sem hluti af aðgerð C.10 á Byggðaáætlun og var unnið í samstarfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Byggðastofnunar, Skipulagsstofnunar og Veðurstofu Íslands. Fimm sveitarfélög tóku þátt í verkefninu þar sem þróuð og prófuð var aðferðafræði við áhættuskimun, viðkvæmnimat og forgangsröðun aðlögunaraðgerða sem síðan var sett upp í fyrrnefndan leiðarvísi.
Viðburðurinn fór einnig fram í streymi og er upptöku að finna hér.
Leiðarvísirinn, sem ber nafnið „Frá áskorunum til aðgerða", leiðir notandann skref fyrir skref í gegnum ferlið við áhættuskimun, viðkvæmnimat og mótun og forgangsröðun aðlögunaraðgerða á sveitarstjórnarstigi.
Hann styður sveitarfélög til að svara nokkrum grundvallarspurningum:
Hvaða loftslagstengdu atburðir eru líklegir til að eiga sér stað á okkar svæði núna eða í framtíðinni?
Hvar liggja veikleikar í innviðum, samfélagi og regluverki?
Hvaða ákvarðanir þurfum við að taka í dag til þess að vera betur í stakk búin til framtíðar?

Leiðarvísirinn leiðir notandann á hagnýtan hátt í gegnum ferlið við mótun og forgangsröðun aðlögunaraðgerða vegna loftslagsbreytinga.
Aðferðafræðin gerir ráð fyrir þverfaglegu samstarfi innan sveitarfélagsins og virku samtali og samráði við fulltrúa samfélagsins. Með slíkri nálgun og aðgengilegum leiðbeiningum fyrir framkvæmdina er reynt að aðstoða sveitarfélög til þess að bregðast við áhrifum loftslagsbreytinga í tæka tíð án þess að þurfa að leggja í mikinn kostnað vegna sérfræðiráðgjafar, rannsókna og gangaöflunar.
Á málþinginu var rætt við fulltrúa frá sveitarfélögum sem tóku þátt í tilraunaverkefninu. Á meðal þeirra var slökkviliðsstjóri slökkviliðs Akureyrar, Gunnar Rúnar Ólafsson. Akureyrarbær stendur frammi fyrir áskorunum vegna aukinnar hættu á gróðureldum og tíðari og öfgakenndari sjávarflóðum. Gunnar dró sérstaklega fram mikilvægi þess að nýta aðferðafræði verkefnisins til þess að ná saman mismunandi aðilum og móta sameiginlega sýn.

Það var lengi vitað að áhættan var til staðar en það var gott að fá alla aðila saman að borðinu og ná sameiginlegum skilningi og gera plan.
Gunnar Rúnar Ólafsson, slökkviliðsstjóri Akureyrar
Samhliða málþinginu var nýtt vefsvæði loftslagsþjónustu Veðurstofu Íslands opnað og er þessi fyrsta útgáfa svæðisins sérstaklega tileinkuð sveitarfélögum. Á vefnum má meðal annars finna:

Nýtt vefsvæði loftslagsþjónstu Veðurstofu Íslands var kynnt á viðburðinum. Fyrsta útgáfa svæðisins er sérstaklega tileinkuð sveitarfélögum.
Skýrar og aðgengilegar upplýsingar á mannamáli um loftslagsbreytingar á Íslandi fyrr, nú og til framtíðar.
Yfirlit yfir verkfæri sem sveitarfélög geta nýtt sér við aðlögun að loftslagsbreytingum.
Gagnvirka yfirlitsmynd sem auðveldar notendum að greina helstu áskoranir og mögulegar lausnir í sínu nærumhverfi.
Á svæðinu verður einnig safnað saman raunverulegum dæmum (góðum og slæmum) frá sveitarfélögum sem önnur sveitarfélög geta lært af.
Vefsvæðið verður áfram í þróun og mun efni og upplýsingum verða bætt við eftir því sem ný gögn, upplýsingar og reynsla verða til.
Með nýjum leiðarvísi og aðgengilegri loftslagsþjónustu er stigið mikilvægt skref frá áskorunum yfir í markvissar aðgerðir.

Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu

Ragnhildur Friðriksdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun og verkefnastjóri C.10

Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands

Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ

Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar

Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar

Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri Reykhólahrepps

Bryndís Marteinsdóttir, sviðsstjóri rannsókna, vöktunar og árangurs hjá Landi og skógi

Elín Björk Jónasdóttir frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu stýrði pallborði.

Mæting var góð á stað og í streymi.
Hagnýtar leiðbeiningar fyrir sveitarfélög og nýtt vefsvæði loftslagsþjónustu Veðurstofu Íslands kynnt á málþingi
Leiðarvísir sem svarar lykilspurningum
— Reynslusaga frá Akureyrarbæ
Nýtt vefsvæði loftslagsþjónustu Veðurstofu Íslands kynnt