Veðurstofa Íslands hýsir skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar sem starfar þvert á svið og deildir Veðurstofunnar. Meginhlutverk hennar er að brúa bilið á milli vísinda og samfélags þegar kemur að miðlun vísindalegra upplýsinga um loftslagsbreytingar og hvernig samfélagið skuli bregðast við þeim. Henni er ætlað að vera formlegur farvegur fyrir viðurkenndar sviðsmyndir um áhrif loftslagsbreytinga á veðurfar, vatnafar og jöklabreytingar og hafið umhverfis Ísland.
Skrifstofan sér um að afla gagna og upplýsinga frá fagstofnunum og öðrum samstarfsaðilum og miðla þeim til almennings og hagaðila. Það má því segja að skrifstofan þjónusti allra geira samfélagsins á nær hvaða sviði sem er. Hvort sem um er að ræða sveitarfélög, fyrirtæki, háskólasamfélagið, íbúa eða stofnanir á sviði náttúruvísinda, félagsvísinda, efnahagsmála eða menningar og lista.
Skrifstofan starfar náið með landsnefnd um vísindastarf vegna loftslagsbreytinga og verkefnisstjórn loftslagsaðgerða, sem báðar eru skipaðar af ráðherra umhverfismála.
Skrifstofan tekur þátt í alþjóðastarfi og er meðal annars tengiliður Íslands við Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) auk þess sem hún sinnir loftslagsþjónustu í samvinnu við erlenda aðila, m.a. Alþjóðaveðurfræðistofnunina (WMO) og loftslagsþjónustu Evrópu (Copernicus). Einnig er hún landstengiliður við Evrópuverkefnið Destination Earth (DestinE). Skrifstofan á fulltrúa í samstarfshópum Norðurlandanna um loftslagsþjónustu og aðlögun í norrænu samhengi.

Lauk doktorsprófi (Ph.D.) í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2016. Hún hefur leitt skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar frá árinu 2021 og ber ábyrgð á rekstri og þróun hennar.
Anna Hulda er landstengiliður Íslands við Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) og Evrópuverkefnið Destination Earth (DestinE).

Lauk doktorsprófi (Ph.D.) í umhverfisverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2022. Hann hefur starfað á skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar frá árinu 2024.
Tarek vinnur að greiningu gagna og úrvinnslu loftslagslíkana og kemur að þróun og framsetningu Loftslagsatlas Íslands.

Lauk B.Sc. gráðu í ferðamálafræði frá Háskóla Íslands árið 2006 og B.Sc. gráðu í jarðfræði frá sama skóla árið 2009. Hún hefur starfað á skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar frá haustinu 2022.
Theó starfar með verkefnisstjórn loftslagsaðgerða og landsnefnd um vísindastarf auk þess sem hún sinnir samstarfi við hagaðila, miðlun og þátttöku í Evrópuverkefnum.