Fyrirvari
Engar skriðuviðvaranir í kortunum
Hægt hefur á hreyfingum í Svínafellsheiði
04.11.2026 | 13:06
Hægt hefur á hreyfingum í Svínafellsheiði síðustu daga. Of snemmt er að draga ályktanir um framhaldið og náin vöktun heldur áfram.
Skriðuvakt
Hreyfingar mælast á ný á Svínafellsheiði
01.11.2026 | 11:43
Hreyfingar hafa mælst á ný í Svínafellsheiði. Þær eru hægar og ekki er talin bráð hætta á berghlaupi. Veðurstofan hefur aukið vöktun á svæðinu.
Skriðuvakt
Suðausturland
Aukin hætta á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu
27.10.2026 | 11:04
Skilin sem spáð var fyrir um í gær ganga nú yfir landið og mikil úrkomuákefð hefur mælst á nokkrum stöðum, meðal annars á Austfjörðum, Austurlandi að Glettingi og á Tröllaskaga. Úrkoma hefur víða mælst meiri en spár gerðu ráð fyrir og skilin virðast ganga hraðar yfir en reiknað var með, einkum á norðanverðu landinu.
Skriðuvakt
Úrkoma og leysingar á þriðjudag, 27. október
26.10.2026 | 14:43
Veðurspáin gerir ráð fyrir úrkomuskilum sem ganga yfir landið frá aðfaranótt þriðjudags, 27. október. Úrkoman byrjar á Suðausturlandi og nær síðan yfir mestallt landið. Mesta úrkomuákefðin verður við og sunnan Vatnajökuls, á Austfjörðum, á Flateyjarskaga og á Ströndum. Skilin ganga fremur hratt yfir landið og á miðvikudag styttir upp. Mesta uppsafnaða úrkomu samkvæmt veðurspánni er að vænta á Ströndum, einkum á jöklum og til fjalla, nyrst á Tröllaskaga, á Flateyjarskaga, á Vesturkinn (fjöllum austan Vopnafjarðar), á norðanverðum Austfjörðum og á Öræfum.
Skriðuvakt