Norðanhríð á Vestfjörðum og Tröllaskaga

11.03.2026

Nýtt

Norðanhríð á Vestfjörðum og Tröllaskaga

  • Lægð með norðlægum áttum og umtalsverðri snjókomu gengur yfir norðanvert landið miðvikudag til föstudags.

  • Mest á að snjóa á Ströndum, Norðanverðum Vestfjörðum, utanverðum Tröllaskaga og í Skagafirði.

  • Spár gera ráð fyrir að veður verði verst á fimmtudag, þá hvöss N-NV-átt á Vestfjörðum.

  • Fyrir er frekar snjólétt miðað við árstíma.

Eftir ríkjandi suðlægar áttir í síðustu viku, þar sem hlýindi náðu upp í talsverða hæð, varð snjóþekjan víða einsleit í neðri hluta fjalla. Í kjölfarið frysti á ný og snjóþekjan tók að styrkjast víðast hvar. Vindflekar héldu sér þó í flestum viðhorfum ofarlega til fjalla og á Norðurlandi er líklegt að viðvarandi veik lög hafi að mestu haldist óáreitt.

Í dag miðvikudag og fram á föstudag er spáð allhvassri norðanátt með snjókomu eða éljum á norðan- og vestanverðu landinu og hríðarveðri á Vestfjörðum, Ströndum og Norðvesturlandi á fimmtudag. Austantil má gera ráð fyrir vestlægum áttum, 10–16 m/s, með éljagangi til fjalla en slyddu eða rigningu á láglendi.

Á norðanverðum Vestfjörðum, Ströndum, utanverðum Tröllaskaga og í Skagafirði er víða spáð 50–100 mm uppsafnaðri snjókomu fram á föstudag. Af þeim sökum má búast við umtalsverðri snjósöfnun í suðlæg viðhorf og að nýir, óstöðugir vindflekar taki að myndast. Líklegt er að snjóflóðahætta aukist á þekktum vegköflum. Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast með aðstæðum og viðvörunum á umferdin.is. Snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist vel með aðstæðum en ekki er talin hætta í byggð sem stendur.

Á Austurlandi lítur út fyrir að áhrif veðursins verði minni. Þó má gera ráð fyrir nokkurri snjókomu til fjalla, skafrenningi og flekamyndun í austlægum viðhorfum.

Í kjölfar mikillar snjókomu er mikilvægt að huga vel að leiðarvali við ferðir til fjalla. Á meðan veðrið stendur yfir og fyrstu dagana eftir er rétt að vara við ferðum í brattlendi þar sem vindflekar hafa myndast. Í skafrenningi safnast snjór gjarnan hlémegin við hryggi og fjallsbrúnir og í gil og lægðir, æskilegt er að forðast slík svæði.