Aflétting hluta rýminga í Seyðisfirði

24.03.2026

Nýtt

Aflétting hluta rýminga í Seyðisfirði

Það bætti mikið á snjó í stórhríð sem stóð frá því seinnipartinn í gær og þar til í morgun. Lítil ofankoma hefur verið í dag en nóg til þess að fjallasýn hefur verið mjög takmörkuð. Aðeins er vitað um eitt snjóflóð eftir veðrið á Austfjörðum. Féll það á veginn um Fagradal.

Verulega hefur dregið úr snjóflóðahættu og hefur rýmingum undir Strandartindi á Seyðisfirði verið aflétt. Í nótt er spáð stífri norðvestan átt og er það óhagstæð vindátt fyrir snjósöfnun í fjallið Bjólf á Seyðisfirði. Rýmingu þar undir verður því í varúðarskyni viðhaldið til fyrramáls.