Aflétting rýmingar undir Bjólfi á Seyðisfirði

25.03.2026

Nýtt

Aflétting rýmingar undir Bjólfi á Seyðisfirði

Veður hefur gengið niður austanlands og hefur rýmingu undir Bjólfi á Seyðisfirði verið aflétt, og þar með hættustigi á Austfjörðum, en enn er óvissustig vegna snjókomu og hvassviðris sem spáð er upp úr hádegi á morgun, fimmtudag. Þegar sást til fjalls í morgun, miðvikudaginn 25. mars, var ekki að sjá mikinn snjó í fjallshlíðinni og ekki mikla hreyfingu á snjó í skafrenningi. Ekki sást til nýrra snjóflóða eftir gærdaginn og nóttina. Aðeins er vitað um eitt snjóflóð eftir veðrið í gær og fyrradag á Austfjörðum sem féll á veginn um Fagradal.