Aflýsing hættustigs á Ísafirði

16.03.2026

Nýtt

Aflýsing hættustigs á Ísafirði

Rýmingu atvinnuhúsnæðis á Ísafirði hefur verið aflétt. Dregið hefur úr vindstyrk og þar með skafrenningi til fjalla. Í dag er spáð norðaustan átt og snjókomu og éljum en norðlægari á morgun og minnkandi éljum.

Mörg snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum í gegnum veðrið m.a. ofan við svæðið sem var rýmt. Flóðin hafa ekki verið mjög stór en þó náð niður í fjallsrætur.

Áfram er óvissustig á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi.