Aflýsing óvissustigs vegna snjóflóðahættu

19.03.2026

Nýtt

Aflýsing óvissustigs vegna snjóflóðahættu

Í dag gengu hlýindi yfir landið og var frostlaust til fjalla. Mörg snjólfóð féllu á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi í hlýindunum. Nú hefur kólnað og fryst aftur, samhliða hefur dregið úr snjóflóðahættu. Rýmingum vegna snjóflóðahættu og óvissustigi hefur verið aflétt á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi.

Óvissustig vegna krapaflóðahættu er enn í gildi á sunnanverðum Vestfjörðum. Nokkur lítil krapaflóð féllu á svæðinu í dag. Dregið hefur úr hættunni eftir að kólnaði en enn er eitthvað vatn í farvegum.