17.03.2026
Nýtt
Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi. Í dag er minnkandi norðaustan- og norðanhríð. Seint í kvöld kemur svo úrkomubakki yfir Norðurland og verða þar snjókoma og él fram til fyrramáls. Á morgun, miðvikudag, er spáð skaplegu veðri.
Mörg snjóflóð hafa fallið á þessum svæðum frá því fyrir helgi. Fyrst í norðan- og norðvestan hríð á fimmtudag og föstudag en flest flóðin féllu í hvassri norðaustanátt á sunnudag með snjókomu og miklum skafrenningi. Á mánudag féllu snjóflóð á Ólafsfjarðarveg og nokkur í nótt í Ólafsfirði. Staðsetningu skráðra flóða er hægt að sjá á korti hér á vefnum. Reikna má með að fleiri snjóflóð hafi fallið en þau sem hafa sést og eru skráð.
Stærstu flóðin hafa fallið á Norðurlandi. Á Siglufjarðarveg féll stórt flóð úr Selskál líklega á föstudagskvöld. Á hádegi á sunnudag féll stórt snjóflóð á leiðigarðana Stóra-Bola og Litla-Bola á Siglufirði. Flóðið féll úr bæði Jörundarskál og Strengsgiljum, það rann niður með görðunum en flóðið virðist ekki hafa náð hátt upp á garðana. Flóðið er um 100 m styttra en stærstu flóð sem hafa fallið á garðana eftir að þeir voru reistir. Í Ólafsfirði féllu stór snjóflóð ofan og utan við hesthúsahverfi þar hafði verið varað við snjóflóðahættu.
Á Ísafirði féll snjóflóð niður á snjóflóðavarnarkeilur undir Seljalandshlíð. Flóðið fór yfir Skíðaveginn en vantaði töluvert upp á að ná niður að leiðigarðinum neðan keilanna. Mörg önnur flóð hafa fallið úr giljum í Seljalandshlíð en þau hafa verið minni.
Ofan Flateyrar hafa mælst mörg flóð með snjóflóðaratsjá. Þau hafa ekki verið stór og aðeins hluti þeirra hefði uppgötvast án ratsjárinnar.
Enn er snjóflóðahætta á vegum á milli þéttbýliskjarna á norðanverðum Vestfjörðum og Tröllaskaga. Fólki er bent á að fylgjast með tilkynningum frá lögreglu og upplýsingum á umferdin.is.