BETA
06.08.2026
Nýtt

Almyrkvaslóðin 12. ágúst 2026 liggur yfir vestanvert Ísland og áfram suður yfir Atlantshaf og Evrópu. Mynd: NASA’s Scientific Visualization Studio / Ernie Wright. Aðlöguð fyrir vefbirtingu.
Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 gengur almyrkvi á sólu yfir vestanvert Ísland. Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Vesturland, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Annars staðar á landinu sést deildarmyrkvi.
Almyrkvinn fer yfir vestanvert landið á örfáum mínútum, frá Vestfjörðum um kl. 17:44 til Reykjanesskaga um kl. 17:49. Á hverjum stað stendur almyrkvi aðeins yfir í stutta stund og því er mikilvægt að kynna sér kort, tímasetningar og veðuraðstæður fyrirfram.