Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi, sunnanverðum Austfjörðum og á Miðhálendinu fram á aðfaranótt föstudags

29.09.2026

Athugið

Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi, sunnanverðum Austfjörðum og á Miðhálendinu fram á aðfaranótt föstudags

  • Talsverðri til mikilli úrkomu er spáð, einkum á Suðausturlandi, við jökla á Suðurlandi, á sunnanverðu Miðhálendinu og sunnanverðum Austfjörðum fram á fimmtudagskvöld.
  • Mjög mikil uppsöfnuð úrkoma getur valdið auknu afrennsli, grjóthruni og skriðuföllum sem geta truflað samgöngur.

Nokkrar lægðir ganga yfir landið í víku og flytja með sér hlýtt og rakt loft. Búast má við talsverðri til mikilli úrkomu frá þriðjudegi fram á fimmtudagsnótt, einkum á Suðausturlandi, við Eyjafjallajökli og Mýrdalsjökli, á sunnanverðu Miðhálendinu og sunnanverðum Austfjörðum. Einnig getur rignt talsvert á Snæfellsnesi.

Vegna hlýinda mun langstærstur hluti úrkomunnar falla sem rigning, einnig til fjalla. Leysing frá jöklum getur þar að auki aukið afrennsli í ám og lækjum á áhrifasvæðunum.

Talsverð úrkoma féll víða á Suðausturlandi og Austurlandi í síðustu viku. Vatn sem safnast hefur fyrir í jarðvegi og lausum jarðlögum getur aukið þrýsting í hlíðum og þar með líkur á jarðhreyfingum á borð við grjóthrun og skriður.

Veðurstofa Íslands hefur gefið út veðurviðvörun vegna mikillar rigningar. Í viðvöruninni kemur fram að búast megi við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem auki hættu á flóðum og geti valdið tjóni og raskað samgöngum.

Mikil uppsöfnuð úrkoma fram á aðfaranótt föstudags eykur líkur á skriðuvirkni, eins og grjóthruni og aurskriðum, sérstaklega á svæðum þar sem landslag er bratt. Skriður geta fallið á vegi og raskað samgöngum með litlum fyrirvara.

Þar sem vegir liggja gjarnan undir bröttum hlíðum er rétt að sýna aðgát á ferðinni og fylgjast með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar.

Myndina sýnir mikill uppsöfnun á suðausturlandið, sunnanverða Austfjörðum, Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökull

Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.