Austan óveður með snjókomu annan í páskum og leysingar næstu daga

06.04.2026

Nýtt

Austan óveður með snjókomu annan í páskum og leysingar næstu daga

Austan óveður er að ganga inn á landið með snjókomu vestantil en rigningu eða slyddu við sjávarmál sunnantil. Í kvöld mánudag og í nótt er spáð mikilli úrkomu á SA-landi og Austfjörðum sem fellur að mestu sem snjór en svo á að hlýna og breytast í rigningu þegar dregur úr úrkomu. Á morgun þriðjudag lítur út fyrir hvassa S-átt með þíðu og talsverðri leysingu, þá verður hlýjast norðantil en jafnframt úrkomuminnst. Næstu daga lítur út fyrir áframhaldandi S-lægar áttir með hláku og rigningu við sjávarmál sunnantil.

Búist er við að snjóflóð geti fallið í óveðrinu næsta sólarhringinn þar sem mesta úrkoman verður, í fyrstu þurr snjóflóð en svo vot snjóflóð eftir því sem þiðnar upp eftir fjallshlíðum. Í suðlægu áttunum næstu daga gæti jafnvel skapast hætta á krapaflóðum þar sem snjór verður vatnsmettaður í leysingum. Eins gæti grjót hrunið á þekktum stöðum í leysingunum.