22.03.2026
Nýtt
Það má segja að veturinn hafi komið af fullum krafti nú í mars eftir tiltölulega rólega tíð framan af vetri. Lægðirnar koma á færibandi en stoppa stutt. Það bætti mikið á snjó á Vestfjörðum og nyrst á Tröllaskaga í síðustu viku í norðan áhlaupi. Lýst var yfir óvissustigi í þessum landshlutum og gripið til rýminga í dreifbýli í nágrenni Siglufjarðar og Hnífsdals og á atvinnusvæði á Ísafirði. Fjölmörg snjóflóð féllu í þessum landshlutum en engin þeirra ógnuðu byggð. Mörg flóð féllu hins vegar yfir vegi sem voru lokaðir vegna snjóflóðahættu.
Eftir að veðrið gekk niður sem olli snjóflóðahrinunum á Vestfjörðum og Tröllaskaga snérist í skammvinna hláku á vesturhelmingi landsins og féllu nokkur lítil krapaflóð og vot snjóflóð í kjölfarið. Kröftugur útsynningur með dimmum éljum tók við af hlákunni á sunnan-, vestan- og norðanverðu landinu sem bætti aftur töluvert á snjó. Á Austfjörðum kom hins vegar kröftug lægð með skammvinnu norðan hríðarveðri aðfaranótt sunnudags 22. mars. Nokkur snjóflóð hafa verið skráð í Norðfirði sem féllu í þessu veðri.
Seinnipartinn á morgun, 23. mars, kemur næsta lægð með vaxandi austan- og síðan norðaustan átt. Um kvöldmatarleytið gera spár ráð fyrir að verði komin NA-stórhríð á Austfjörðum og vonsku veðri um mestallt land. Mikil lausamjöll er eftir éljagang síðustu daga og má búast við miklum skafrenningi og lélegu skyggni.
