Gryfja í Oddsskarði 28 mars

29.03.2026

Nýtt

Gryfja í Oddsskarði 28 mars

Í gær, 28 mars var gryfja tekin í Oddsskarði í norðurvísandi brekku. Snjóþekjan var hátt í 4m þykk á þessum slóðum en gryfjan 90cm. Gryfjan sýndi lagskipta snjóþekju með vindfleka ofan við hjarnlög. Á efri lagmótum vindfleka og hjarns sýndi útvíkkað samþjöppunarpróf brot á 6 slögum en enga útbreiðslu. Neðar, á 30 cm dýpi fundust önnur lagmót vindfleka og hjarns og þar varð brot á 12 slögum sem breiddi þó ekki úr sér. Þar neðan við var snjóþekjan einsleit og ólagskipt. 

Gryfjan kemur heim og saman við veðurfar austalands undanfarið. Þann 19. mars kom hláka og í kjölfarið varð snjóþekjan einsleit að mestu og styrktist. Í vikunni sem er að líða var nokkur lægðagangur og allmikil snjókoma og skafrenningur. Vindflekar mynduðust í flestum viðhorfum.

Spáð er áframhaldandi éljagangi og hvassviðri framanaf í vikunni.