Gryfja Kistufelli 27.feb

28.02.2026

Nýtt

Gryfja Kistufelli 27.feb

Gryfja við Kistufell sýndi um 30 cm af lagskiptum nýlegum skafsnjó ofan á eldri pökkuðum snjó. Mikil köntun var á 20-30 cm dýpi. Ekki var gert stöðugleikapróf en flekaflóð féll á meðan gryfjan var gerð í nærliggjandi brekku þegar sólin tók að skína á brekkuna. Talið er að flóðið hafi fallið á þessu kantaða lagi.