Gul skriðuviðvörun á Austfjörðum

07.10.2026

Athugið

Gul skriðuviðvörun á Austfjörðum

  • Auknar líkur á grjóthruni og minni skriðum á Austfjörðum er skil ganga yfir landið á fimmtudag og föstudag.
  • Síðustu vikur hafa verið úrkomusamar og því rignir í vatnsmettaðan jarðveg.

Veðurspá gerir ráð fyrir talsverðri úrkomu á austanverðu landinu frá fimmtudeginum 8. október til föstudags 9. október er skil ganga yfir landið. Síðustu vikur hafa verið úrkomusamar og því rignir víða í þegar vatnsmettaðan jarðveg. Seint á föstudag á að draga úr úrkomu og kólna lítillega, dregur þá úr skriðuhættu.

Í síðustu viku gekk lægðakerfi yfir landið sem með fylgdi talsverð úrkoma víða um land. Í kjölfarið bárust tilkynningur um skriður og grjóthrun á Austfjörðum, auk þess í Skriðdal og Fljótsdal. Búast má við svipuðum aðstæðum og sköpuðust þá, þó verður minni úrkoma í þetta skiptið.

Mikil uppsöfnuð úrkoma fram á föstudags eykur líkur á skriðuvirkni, eins og grjóthruni og aurskriðum, sérstaklega á svæðum þar sem landslag er bratt. Vegakerfið á Austfjörðum liggur að stórum hluta undir bröttum hlíðum og skyndilegar yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, aurskriður og jarðvegsskriður, geta truflað samgöngur.

Forðist dvöl undir bröttum hlíðum, sýnið aðgát á ferðalögum og fylgist með upplýsingum frá Veðurstofu Íslands og Vegagerðinni.

Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.