Hættustig vegna snjóflóðahættu á Ísafirði

19.03.2026

Nýtt

Hættustig vegna snjóflóðahættu á Ísafirði

Í nótt gekk í suðvestan hvassviðri með rigningu. Á norðanverðum Vestfjörðum er töluverður snjór eftir norðanáttir síðustu vikuna. Snjóflóð féllu þegar hlýnaði í morgun, þ.á.m. stórt snjóflóð í Kirkjubólshlíð sem fór út í sjó. Fleiri snjóflóð geta fallið en votur snjór á láglendi getur þó dregið úr úthlaupi.

Í ljósi þessara flóða hefur verið ákveðið að rýma atvinnuhúsnæði á Ísafirði.