Hlýindi og leysingar næstu daga

07.04.2026

Nýtt

Hlýindi og leysingar næstu daga

  • Töluverður snjór er á landinu, mest austanlands og á utanverðum Tröllaskaga.

  • Hlýnað hefur til fjalla um allt land og víða rignt. Snjór hefur sjatnað og hann tekið upp.

  • Lítil vot snjóflóð hafa fallið víða um land eftir að hlýnaði. Búast má við fleiri votum snjóflóðum næstu daga.

  • Rigningu er spáð á Vesturlandi, Suðurlandi og Austfjörðum á morgun, miðvikudaginn 8. apríl. Leysingar verða áberandi á þessum svæðum fram að helgi.

  • Ekki er hægt að útiloka krapaflóð á svæðunum þar sem mest hlánar.

Í gær og nótt, aðfaranótt þriðjudags, tók að hlýna á öllu landinu þegar skil gengu yfir landið. Snjór féll í efstu fjallatoppa en rigning var á láglendi. Á þriðjudagsmorgun var víðast orðið hlýtt upp í fjallatoppa. Gera má ráð fyrir áframhaldandi hlýindum og leysingum fram að helgi.

Töluverður snjór er enn á landinu eftir úrkomusaman mars, sér í lagi á austanverðu landinu og yst á Tröllaskaga. Víða hefur snjórinn sjatnað í kjölfar hlýindanna og sums staðar tekið upp. Á Austfjörðum hefur almennt verið lítið afrennsli í kjölfar úrkomunnar í gær og virðist snjórinn víða hafa gleypt í sig rigninguna.

Vot snjóflóð hafa fallið víða um land síðan í gær, flest á Austfjörðum þar sem úrkoman hefur verið mest. Búast má við að fleiri vot snjóflóð falli til fjalla næstu daga, og geta þau jafnvel orðið stór ef hlákan nær að vinna sig langt ofan í snjóþekjuna og hafa áhrif á djúpa veikleika. Ekki er búist við að hætta skapist í byggð vegna þessa. Sjá mat á snjóflóðaaðstæðum og skráð snjóflóð á gottvedur.is

Veðurspáin gerir ráð fyrir áframhaldandi rigningu og hlýindum á morgun, miðvikudaginn 8. apríl, en síðan skúrakenndu veðri fram að helgi. Búast má við snjókomu eða slyddu í efstu fjallatoppum. Aðstæður verða því áfram hagstæðar fyrir leysingar á vestan-, sunnan- og austanverðu landinu, með mesta úrkomu til fjalla á þessum svæðum, en þurru veðri á norðanverðu landinu. Á norðanverðu landinu má þó líka búast við einhverjum leysingum vegna hlýinda og hnúkaþeys, sérstaklega í dag þriðjudag.

Með hliðsjón af áframhaldandi hlýnun, leysingu og rigningu næstu daga má gera ráð fyrir vatnavöxtum. Samfara þeim er ekki hægt að útiloka krapaflóð, litlar skriður og grjóthrun á þekktum skriðustöðum á vestan-, sunnan- og austanverðu landinu.