18.03.2026
Nýtt
Óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi
Óvissustig er í gildi vegna krapaflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum
Veðurviðvaranir eru í gildi
Veðurspá gerir ráð fyrir talsverðri úrkomu vestanlands samhliða hlýnandi veðri
Úrkoman fellur fyrst sem snjókoma, slydda og svo rigning á láglendi
Búast má við rigningu til fjalla þegar líður á daginn
Hláka er í vændum
Veðurspáin gerir ráð fyrir sunnan hvassviðri eða stormi sem kemur upp að vesturströnd landsins í kvöld, miðvikudaginn 18. mars. Aðfaranótt fimmtudagsins 19. mars koma skilin inn að landinu með hlýindum og talsverðri úrkomu samfara hvassviðrinu. Úrkoman verður að mestu í formi rigningar á láglendi vegna hlýindanna. Framan af verður þó snjókoma eða slydda til fjalla, en þegar líður á daginn má búast við rigningu upp í um 450 m h.y.s.
Hiti gæti farið í 5–12°C, með mestu hlýindum á SV‑horninu og mestri úrkomu er spáð á sunnanverðum Vestfjörðum, á Snæfellsnesi, undir jöklum (Langjökli, Hofsjökli, Mýrdalsjökli og í Öræfum) og á Suðvesturlandi.
Óvissustig er í gildi á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi vegna snjóflóðahættu. Óvissustig er í gildi vegna krapaflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum. Þar sem snjór er í giljum geta fallið vot snjóflóð, meðal annars krapaflóð í giljum og farvegum. Þar sem lítið er af snjó á jörðu er ekki hægt að útiloka grjóthrun og aurspýjur sem gætu truflað umferð þar sem vegir liggja undir bröttum hlíðum. Vegfarendum er bent á að fylgjast með aðstæðum á https://umferdin.is/.
Veðrið gengur hratt yfir og úrkoman verður að mestu leyti búin á fimmtudagskvöld, þegar kólnar aftur og éljaveður er í kortunum.
Tilkynningar frá snjóflóðavaktinni má nálgast hér.

Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Hægt er að hafa samband í síma 522-6000 á opnunartíma skiptiborðsins (https://www.vedur.is/um-vi/hafa-samband/) eða senda tölvupóst með upplýsingum á netföngin skriduvakt@vedur.is og snjoflod@vedur.is. Gott er að láta fylgja mynd af flóðinu (skriðunni, grjóthruninu, krapaflóðinu eða snjóflóðinu) og nákvæma staðsetningu auk tímasetningar, hvenær ofanflóðið féll eða hvenær fólk varð vart við það. Einnig er hægt að tilkynna ofanflóð með þessu formi hér.