BETA

Aukið rennsli og mikil gasmengun í Múlakvísl

20.08.2026

Nýtt

Athugið

Aukið rennsli og mikil gasmengun í Múlakvísl

Jökulhlaupið sem hófst í Múlakvísl þann 18. ágúst heldur áfram. Síðan í gær hefur rafleiðni og rennsli í ánni aukist og áfram mælist gasmengun á svæðinu. Í gærkvöldi hækkaði rafleiðni nokkuð skarpt og mælist nú rúmlega 500 µS/cm sem er óvenju hátt miðað við síðustu hlaup í ánni. Síðast mældist rafleiðni svipað há í hlaupinu í júlí 2017 en þá toppaði hún í 580 míkróS/cm.  

Línurit sem sýnir hækkandi rafleiðni í Múlakvísl við Þjóðveg 1 frá 17. til 20. ágúst 2026. Rafleiðnin hækkar úr um 180 míkróS/cm í um 550 míkróS/cm. Fyrstu merki um hlaup eru merkt aðfaranótt 18. ágúst og mesta hækkunin verður aðfaranótt 20. ágúst.

Rafleiðnimælingar í Múlakvísl við Þjóðveg 1 frá 17. ágúst þar til í morgun 20. ágúst.

Að svo stöddu hefur vatnshæð í ánni ekki aukist að ráði en á vefmyndavélum sést að áin hefur dreift úr sér sem bendir til þess að rennsli hafi aukist. 

Allmörg hverasvæði eru þekkt undir Mýrdalsjökli. Sírennsli er frá þessum svæðum og fer það eftir landslaginu á hverjum stað hvort bræðsluvatnið safnast fyrir eða ekki. Misjafnt er hversu mikið vatn safnast fyrir í þessum lónum áður en hleypur úr þeim og einnig hversu hratt þau tæmast. 

Hlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í Múlakvísl. Mikil gasmengun fylgir hlaupinu að þessu sinni, Því er varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar við jökuljaðarinn. Hægviðri undanfarna daga eykur einnig hættuna á að gas safnist fyrir í lægðum. Ef fólk finnur fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, á að yfirgefa svæðið strax.

Veðurstofan fylgist grant með þróuninni og er í beinum samskiptum við Almannavarnir.

Kort af Múlakvísl sunnan Kötlujökuls. Rauður punktur sýnir staðsetningu vefmyndavélar nærri jökuljaðrinum og appelsínugulur punktur sýnir rafleiðnimæli við Þjóðveg 1, sunnar með ánni.

Kortið sýnir staðsetningu vefmyndavélar og rafleiðnimælis.