BETA
Leysingar og úrkoma á vestan-, sunnan- og suðaustanverðu landinu næsta sólarhring
03.03.2026
Það hefur verið kalt á landinu síðustu daga, en skilin sem koma inn að landinu í kvöld og í nótt gera ráð fyrir úrkomu og leysingum á vestan-, sunnan- og suðaustanverðu landinu. Búast má við hlýindum fram til morguns. Við slíkar veðurfarslegar aðstæður er ekki hægt að útiloka grjóthrun á þekktum grjóthrunsstöðum.
Tvær tilkynningar um grjóthrun hafa borist Veðurstofunni í dag á Suðurlandi.

afrennsliskort-3-3-2026
Veðurstofan óskar eftir tilkynningum um ofanflóð, svo sem snjóflóð, krapaflóð, skriður og grjóthrun. Tilkynningar hjálpa til við að meta aðstæður, sem geta verið mjög mismunandi eftir svæðum.
Gott er að láta fylgja með:
Einnig má senda upplýsingar á snjoflod@vedur.is eða skriduvakt@vedur.is. Á opnunartíma skiptiborðs er einnig hægt að hringja í síma 522 6000.