BETA
30.10.2025

ofanflod-og-asahlaka-2025-10-30
Spáð er norðaustan hvassviðri og asahláku á morgun, föstudag 31. október, og um helgina. Í dag er víða dálítil él, og snjókoma á köflum suðaustantil, frost 0 til 7 stig. Í nótt á að hlýna og á morgun, föstudag, má búast við hita yfir frostmarki alls staðar á landinu, mest um og yfir 10 stig suðaustanlands. Hlýindunum fylgir úrkoma í formi rigningar á láglendi, en slyddu eða snjókomu efst til fjalla. Úrkoman nær yfir vítt svæði, frá norðanverðum Vestfjörðum og að Suðausturlandi. Mestri úrkomu er spáð á Ströndum, Norðurlandi, Austfjörðum og Suðausturlandi.
Snjóað hefur í vikunni og er fannhvíta jörð að sjá víða. Þar sem snjór er í bröttum brekkum geta lítil vot snjóflóð fallið þegar hlýnar skarpt og rignir, og krapaflóð geta fallið þar sem snjór er í vatnsfarvegum.
Líkur á krapaflóðum og votum snjóflóðum geta aukist á meðan veðrið gengur yfir, sérstaklega á Suðausturlandi, Austfjörðum, Norðurlandi og Ströndum. Ekki er talið að hætta skapist í byggð en Ofanflóðavakt Veðurstofunnar fylgist vel með aðstæðum.

ofanflod-og-asahlaka-2025-10-30
Veðurstofan þiggur gjarnan tilkynningar um ofanflóð. Upplýsingarnar hjálpa okkur að fylgjast betur með aðstæðum og bæta viðbragð.
Ef rafræna eyðublaðið hentar ekki er einnig hægt að hafa samband við Veðurstofuna á annan hátt.
Hringdu í 522 6000 á opnunartíma skiptiborðs.
Sendu upplýsingar á eitt eða fleiri af eftirfarandi netföngum:
Ef rafræna eyðublaðið hentar ekki er einnig hægt að hafa samband við Veðurstofuna á annan hátt.
Gott er að láta fylgja: