28.04.2026
Jarðvegsskriða féll á Grenivíkurveg í nótt og lokaði honum. Grjóthrun var á Súðavíkurhlíð í gær, 27. apríl.
Hlýindi og leysingar næstu sólarhringa auka líkur á skyndilegum skriðum.
Mestar líkur eru á Norður- og Vesturlandi, einkum í bröttum hlíðum og giljum.
Aukinn afrennsli verður á Austfjörðum vegna hlýinda.
Skriður og grjóthrun geta fallið án mikils fyrirvara – sýnið aðgát á ferðinni.
Leysingar og hlýindi samfara hvassviðri hafa verið áberandi síðastliðinn sólarhring á norðan- og vestanverðu landinu. Samkvæmt veðurspá má búast við áframhaldandi hlýindum fram á fimmtudag, en þá dregur úr vindi og fer að kólna aftur. Víða er enn snjór í giljum og hátt til fjalla. Vindur getur aukið hlýnun og þar með leysingar.
Auknar líkur eru á jarðvegsskriðum eða grunnum skriðum þegar jarðvegur í nægilegum halla verður vatnsmettaður. Einnig eru líkur á farvegabundnum aurskriðum og grjóthruni.
Þegar snjór bráðnar hratt eykst vatnsmagn í jarðvegi, sem getur valdið því að skriður fari skyndilega af stað án mikils fyrirvara. Veðurspá gerir þó ekki ráð fyrir mikilli úrkomu á Norðurlandi, sem annars myndi auka líkur á skriðum.
Á Vesturlandi ganga hins vegar nokkur skil yfir, með töluverðri úrkomu í stuttan tíma á Snæfellsnesi og á sunnanverðum Vestfjörðum, sem getur aukið vatnsmagn og þar með hættu á skriðum.
Fólki er ráðlagt að sýna aðgát á ferðinni undir bröttum hlíðum, þar sem skriður og grjóthrun geta fallið við slíkar aðstæður.
Skriðuvakt Veðurstofunnar barst tilkynning um skriðu sem féll á Grenivíkurveg við afleggjarann inn á Grenivík skömmu eftir miðnætti aðfaranótt þriðjudagsins 28. apríl. Önnur skriða féll neðan vegar eins og sjá má á flygildismynd. Lítil úrkoma hefur verið á Norðurlandi síðasta sólarhring svo orsök skriðunnar má að rekja til leysinga.

Skriða sem féll á Grenivíkurvegi í nótt. Starfmaður Veðurstofunnar sést til vinstri sem mælikvarði. Mikið vatn er á ferðinni í hliðinni. Fyrir neðan veg féll önnur skriðan í sjó.
Skriðuvakt Veðurstofu Íslands þiggur gjarnan upplýsingar um nýlegar skriður til að geta metið aðstæður, sem geta verið mjög mismunandi eftir landsvæðum. Hægt er að senda tölvupóst á skriduvakt@vedur.is eða fylla út tilkynningarform hér. Gott er að taka mynd og skrá staðsetningu og tímasetningu (ef hún er þekkt).
Skriðuvakt Veðurstofu Íslands óskar eftir upplýsingum um nýlegar skriður. Tilkynningar hjálpa til við að meta aðstæður, sem geta verið mjög mismunandi eftir landsvæðum.
Gott er að láta fylgja með:
mynd, ef hún er til
staðsetningu
tímasetningu, ef hún er þekkt
Fylltu út tilkynningarform um skriðu
Einnig má senda upplýsingar á skriduvakt@vedur.is.