BETA

Lítið hlaup í Múlakvísl

20.08.2026

Nýtt

Lítið hlaup í Múlakvísl

Undanfarna sólarhringa hefur rafleiðni í Múlakvísl hækkað jafnt og þétt og er orðin óvenju há miðað við árstíma en hún mælist um 285 míkróS/cm. Leiðnimælingar segja til um magn jarðhitavatns í ám og há gildi benda til þess að lítið jökulhlaup sé í gangi. Að svo stöddu hefur vatnshæð í ánni ekki hækkað samhliða leiðniaukningunni en mögulegt er að það geti gerst á næstu dögum.

Hlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í Múlakvísl. Mikil gasmengun fylgir hlaupinu að þessu sinni, en Veðurstofan er með gasmæli við Láguhvola sem eru um 2 km frá jökuljaðri Kötlujökuls. Í nótt mældist brennisteinsvetni (H2S) þar yfir heilsuverndarmörkum. Því er varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar við jökuljaðarinn. Hægviðri undanfarna daga eykur einnig hættuna á að gas safnist fyrir í lægðum. Ef fólk finnur fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, á að yfirgefa svæðið strax.

Sólarhringsvakt Veðurstofu Íslands fylgist áfram með mælingum á svæðinu og sendir út nýjar upplýsingar ef breytingar verða.

Kort af Mýrdalsjökli og nágrenni sem sýnir staðsetningu mælistöðva Veðurstofu Íslands. Gasmælirinn við Láguhvola er merktur Hvo sunnan Kötlujökuls, skammt norðvestan Hafurseyjar.

Appelsínugulir þríhyrningar tákna jarðskjálftamæla VÍ í kringum Mýrdalsjökul. Gasmælirinn við Láguhvola er sunnan Kötlujökuls á sama stað og skjálftamælirinn sem merktur er Hvo á kortinu.