Ofanflóðaaðstæður 27.-29. mars

27.03.2026

Nýtt

Ofanflóðaaðstæður 27.-29. mars

  • Í dag föstudag hefur verið snjókoma og norðan skafrenningur á norðanverðum Vestfjörðum og Tröllaskaga. Varað er við snjóflóðahættu á þekktum vegköflum á þeim svæðum.

  • Útivistarfólk til fjalla er beðið um að fara varlega, víða er óstöðugur snjór. Sjá svæðisbundnar snjóflóðaspár.

  • Á laugardagskvöld kemur önnur lægð með austanátt og úrkomu.

Föstudagur 27. mars

Í dag, föstudaginn 27. mars, hefur blásið, snjóað lítillega og skafið ákaft undan norðlægum áttum á norðanverðum Vestfjörðum. Nokkuð stórt snjóflóð féll í Innra‑Bæjargili ofan við Flateyri kl. 12:50; sjá má mynd af radar sem sýnir áætlað úthlaup. Einnig hefur borist fregn af minna snjóflóði í norðanverðum Dýrafirði.
Snjókoma í veðrinu hefur ekki verið áköf og ekki er talin hætta í byggð. Hins vegar er varað við snjóflóðahættu á Flateyrarvegi, Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals.
Veðurspár gera ráð fyrir að dragi úr vindi og úrkomu í kvöld og að rólegt veður verði á Vestfjörðum í nótt og fram eftir degi á morgun, laugardag.

Snjóflóð úr Innra-Bæjargili sem radar á Flateyri greindi

Á Tröllaskaga er talsverð ofankoma og skafrenningur undan norðanátt. Varað er við snjóflóðahættu á Siglufjarðar- og Ólafsfjarðarvegi. Ekki er talin hætta í byggð. Spár gera ráð fyrir að dragi úr vindi og úrkomu í nótt.

Laugardagur 28. mars

Á morgun laugardag er spáð fallegu veðri víða um land. Gera má ráð fyrir að margir nýti veðurgluggann til útivistar. Fólk er beðið um að fara varlega á ferðum sínum um fjalllendi, víða eru óstöðug snjóalög eftir nýlega snjókomu og skafrenning og sums staðar einnig dýpri viðvarandi veikleikar. Svæðisbundnar snjóflóðaspár lýsa aðstæðum á mismunandi svæðum.

Um kvöldmatarleyti á lægð að koma upp að suðvesturströnd landsins og ferðast frá vestri til austurs. Hlýindi fylgja lægðinni, sérstaklega meðfram suðurströndinni. Í fyrstu ætti að snjóa, en úrkoman breytist hratt í slyddu og rigningu á láglendi, þótt áfram snjói til fjalla. Snjór er víða á sunnanverðu landinu, þó mismikill eftir svæðum, og má því búast við að hann blotni og leysi þar sem hann er til staðar. Úrkoman er frekar skammvinn en ákefðin getur orðið mikil, allt að 15 mm/klst í grennd við Öræfajökul. Ekki er hægt að útiloka blaut snjóflóð og jafnvel krapaflóð á svæðunum þar sem hlýnar.

Á Norðurlandi og Vestfjörðum er útlit fyrir kaldara veður á laugardagskvöld og úrkoman ætti að mestu að falla sem snjór. Á þeim svæðum gæti aftur skapast snjóflóðahætta á þekktum vegköflum annað kvöld, og eru vegfarendur hvattir til að fylgjast með aðstæðum og aðvörunum á umferdin.is

Sunnudagur 29. mars

Útlit er fyrir leysingar á sunnanverðu landinu á sunnudag. Annars staðar á landinu ætti leysing að vera mun minni og einkum áberandi við sjávarsíðuna. Ekki er hægt að útiloka blaut snjóflóð eða krapaflóð þar sem leysing verður mest.

Uppsöfnuð úrkoma frá kl. 12 á föstudag til kl. 3 aðfaranótt laugardags

Uppsöfnuð úrkoma frá kl. 12 föstudag til kl. 9 á sunnudagsmorgun