Ofanflóðaaðstæður 28.-29. mars

28.03.2026

Ofanflóðaaðstæður 28.-29. mars

Eftir byl á norðurhelmingi landsins í gær var fallegt veður víða um land í dag, laugardag, sól og hægur vindur fram eftir degi. Margir nýttu daginn í vetrarútivist og seinnipart dags féll snjóflóð undan vélsleðamanni í Skeggjabrekkudal inn af Ólafsfirði. Sem betur fer urðu ekki slys á fólki. Vakin er athygli á að fyrstu dagana eftir mikla snjókomu og skafrenning er snjóflóðahætta iðulega mikil og auknar líkur á að umferð fólks setji af stað snjóflóð.

Nú um kvöldmatarleyti laugardags er farið að hvessa úr austri og úrkoma komin yfir sunnanvert land, Vesturland og sunnanverða Vestfirði. Spár gera ráð fyrir að lægðin gangi hratt yfir landið, með ákafri snjókomu í nokkra klukkutíma víða um land og austan hvassviðri eða stormi. Búast má við að snjóflóð falli á meðan veðrið gengur yfir, einkum í hlíðum sem snúa til vesturs og safna í sig snjó í austanáttinni. Ekki er talin hætta í byggð en búast má við snjóflóðahættu á þekktum vegköflum á Austfjörðum, Norðurlandi, Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast með akstursskilyrðum og aðvörunum á umferdin.is

Á morgun, sunnudag, dregur úr vindi og úrkomu víðast hvar nema nyrst þar sem búast má við austan strekkingsvindi og snjókomu fram eftir degi. Áfram má búast við óstöðugum snjóalögum og útivistarfólk er hvatt til að fara varlega og kynna sér svæðisbundnar snjóflóðaspár.