Ofanflóðaaðstæður á landinu

10.04.2026

Nýtt

Ofanflóðaaðstæður á landinu

Eftir páska hefur verið hlýtt um allt land og víða talsverð eða mikil rigning. Snjór blotnaði, sjatnaði og tók upp að hluta. Mörg vot snjóflóð féllu í vikunni, flest á þriðjudag og miðvikudag á Austfjörðum og Vestfjörðum. Þá féll a.m.k. eitt krapaflóð og eitthvað var um grjóthrun. Í seinni hluta vikunnar hefur rignt minna og verið hægt kólnandi.

Um helgina á að kólna enn frekar og snúast í norðlægar áttir. Voti snjórinn ætti þá að stífna og styrkjast og líkur á votum snjóflóðum, krapaflóðum og skiðuföllum að minnka. Hins vegar er kominn sá tími árs þegar dægursveifla í hita og sólbráð eru farin að hafa talsverð áhrif á snjó. Hann getur verið mýkri og óstöðugri þegar líður á daginn heldur en snemma á morgnana, sérstaklega í hlíðum þar sem sólin skín. Útivistarfólk ætti því áfram að huga að möguleikanum á votum snjóflóðum í hlýindum og sól.

Veðurspár gera ráð fyrir lítilli úrkomu fram á laugardagskvöld. Þá gengur lægð inn á austanvert land með ákafri snjókomu og færist svo vestur. Á norðurhelmingi landsins er útlit fyrir ákafa snjókomu til fjalla á laugardagskvöld og sunnudag og skafrenning undan norðan- og norðaustanáttum. Nýi snjórinn getur myndað nýja óstöðuga vindfleka sem bindast illa við undirliggjandi snjó.