BETA

Óvissa um skýjahulu á almyrkvaslóðum

09.08.2026

Nýtt

Athugið

Óvissa um skýjahulu á almyrkvaslóðum

Spá gerð sunnudaginn 9. ágúst kl. 22,

72 klukkustundum fyrir sólmyrkvann miðvikudaginn 12. ágúst.

Á miðvikudag er gert ráð fyrir að lægð komi upp að sunnanverðu landinu. Nýjustu veðurlíkanakeyrslur reikna með að hún verði skammt suður af Reykjanesinu og fari veðraskil hennar yfir stærstan hluta landsins. Síðan er útlit fyrir að hún þokist austur með suðurströndinni í framhaldinu. Úrkoma verði einkum bundin við sunnanvert landið en lítil úrkoma fyrir norðan og einnig við Breiðafjörð. Þar myndu líklega mestar líkur verða á að skýjahula gæti brotnað upp.

Nú eru flest líkön komin með lægðina á svipaðar slóðir og aukast því líkur á að við séum að nálgast rétta staðsetningu lægðarinnar. Enn er óvissa um umfang skilanna og hve mikið og langt skilin ganga til norðurs upp eftir Faxaflóa. Það mun hafa mikið að segja vel eða hvort eitthvað muni sjást til sólmyrkvans.

Nú eru háupplausnarlíkönin farin að ná nógu langt til að dekka kl. 18 á miðvikudag. Þar er að finna þrenn skýjalög, há- mið- og lágský. Háský hafa lítil áhrif á sólmyrkvann þar sem sólarljós á frekar auðvelt með að brjótast í gegnum þau. Miðskýin hleypa minna í gegnum sig en alls ekki útilokað að hægt sé að njóta sólmyrkvans. Ef hins vegar liggur lágskýjasvæði yfir eru líkurnar hins vegar litlar á að eitthvað sjáist til sólar eða myrkvans.

Fjögur spákort af skýjahulu yfir Íslandi kl. 18 miðvikudaginn 12. ágúst. Heildarskýjakortið sýnir nánast alskýjað um land allt. Lágský eru gisnari sums staðar vestanlands og á Vestfjörðum. Mið- og háskýjakortin sýna einnig göt á svipuðum slóðum, þó ekki á nákvæmlega sömu stöðum.

Heildarskýjahulan gefur til kynna að nánast verði alskýjað yfir landinu kl. 18 (græn mynd). Hins vegar er að sjá að lágskýjamyndin sé dálítið brotin sums staðar vestanlands og á Vestfjörðum. Mið- og háský sýna göt á svipuðum slóðum en ekki á alveg sömu stöðum.

Almennt eru skýjahuluspár þær afurðir sem hvað erfiðast er að reikna þar sem eðlisfræðin þar á bakvið er mjög flókin. Því ber að taka svona smágötum með fyrirvara. Spáin gefur frekar til kynna að göt gætu myndast á svæðinu og ekki er hægt að staðsetja þau nákvæmlega.

Spáin fyrir allt landið á miðvikudag er svohljóðandi:

Austan og norðaustan 3-10 m/s, víða skýjað og rigning með köflum. Þurrt að kalla á Vesturlandi um kvöldið. Hiti 8 til 18 stig, svalast við norður- og austurströndina.

Úrkomuspákort fyrir kl. 18 miðvikudaginn 12. ágúst. Úrkomubelti liggur yfir sunnanverðu landinu, en minni úrkomu er spáð á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi. Litir frá gulu yfir í grænt og blátt sýna vaxandi úrkomumagn.

Úrkomuspákort sem gildir kl.18 á miðvikudag og sýnir með mun meiri nákvæmni hvar rigning munni falla.

Veðurhorfur á almyrkvaslóðum

Höfuðborgarsvæðið

Fremur hæg norðaustlæg átt, skýjað og rigning. Litlar líkur á að göt myndist í skýjahuluna.

Reykjanesskaginn

Svipað útlit og með höfuðborgarsvæðið, norðaustlæg átt og rigning, litlar líkur á að göt myndist.

Snæfellsnes

Núverandi spá gefur til kynna austanátt með lítilli úrkomu og allvíða verður alveg þurrt. Líklega skýjað, en allnokkrar líkur á að skýjahulan gæti brotnað upp á stöku stað.

Vestfirðir

Fremur hæg norðaustlæg átt og þurrt að mestu. Á sunnanverðum Vestfjörðum verður líklega bjartara yfir en norðantil og allgóðar líkur á að göt gætu myndast í skýjahuluna. Núna er útlit fyrir að þau ský sem verði á himni verði mest af mið- og háskýjategundum og minna um lágský.