14.03.2026
Nýtt
Lýst hefur verið yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum frá miðnætti í kvöld. Þá hefur verið ákveðið að nokkur atvinnuhúsnæði á Ísafirði verði rýmd í fyrramálið.
Mikill nýr snjór er á svæðinu eftir N- og NV-veður. Nokkur snjóflóð hafa fallið á svæðinu undanfarna daga m.a. á vegi en ekkert mjög stórt. Aðfaranótt sunnudags hvessir af norðaustri og snjóar. Töluverður skafrenningur getur orðið og hröð snjósöfnun í upptakasvæði snjóflóða.
Snjóflóðahætta verður á vegum og hefur Vegagerðin lýst yfir hættustigi á Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi frá miðnætti og verður vegunum þá lokað.
English:
Avalanche risk uncertainty phase has been declared in northern part of Westfjords. Several avalanches have fallen in the area following considerably snowfall in northern winds. From Saturday evening and throughout Sunday and Monday, northeasterly winds and precipitation are forecast in the north of Iceland and the Westfjords.