Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi

14.03.2026

Nýtt

Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi

Lýst hefur verið yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og hafa íbúar í einu húsi á þekktu hættusvæði í dreifbýli í Siglufirði verið beðnir að dveljast þar ekki meðan óvissustig varir.

Talsverð ofankoma og skafrenningur hefur verið á Tröllaskaga og Vestfjörðum undanfarna daga í norðlægum áttum og hafa nokkur snjóflóð fallið, meðal annars á vegi.
Í nótt, aðfaranótt laugardags, féll mjög stórt snjóflóð úr Selskál skammt utan við Siglufjörð, yfir þjóðveginn og út í sjó en veginum hafði verið lokað í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu.
Mikil úrkoma hefur verið á annesjum á Tröllaskaga undanfarna daga og uppsöfnuð úrkoma á Siglufirði og Ólafsfirði um og yfir 100 mm.

Vegagerðin hefur lýst yfir hættustigi á Siglufjarðarvegi og er hann lokaður en óvissustig er í gildi fyrir veginn um Ólafsfjarðarmúla, og einnig fyrir veginn undir Súðavíkurhlíð.


Um og upp úr miðnætti í kvöld og á morgun, sunnudag, og á mánudag er spáð norðaustan hvassviðri og ofankomu á norðan- og norðvestanverðu landinu.

English:

Avalanche risk uncertainty phase has been declared in northern Iceland. Several avalanches have fallen in the north of Iceland and in the Westfjords following considerably snowfall in northern winds. A large avalanche fell just north of Siglufjörður last night, over the road and into the sea. There was over 100 mm accumulated precipitation in Siglufjörður and Ólafsfjörður in recent days. From Saturday evening and throughout Sunday and Monday, northeasterly winds and precipitation are forecast in the north of Iceland and the Westfjords.