26.03.2026
Nýtt
Komið er hið ágætasta veður á Austfjörðum. Óvissustigi vegna snjóflóðahættu sem lýst var yfir á mánudag hefur nú verið aflétt. Vitað er um nokkur snjóflóð sem féllu í stórhríð sem stóð frá mánudegi og fram á þriðjudagsmorgun. Einnig um eitt flóð sem féll í skafrenningi í gær. Ekki er vitað um snjóflóð á svæðinu í hríðinni í dag.