Páska veðrið og snjóflóða aðstæður á landinu

04.04.2026

Páska veðrið og snjóflóða aðstæður á landinu

Í gær, föstudaginn langa, bætti á snjó víða á landinu og er mjög víða léleg binding við eldri snjó. Náttúruleg snjóflóð hafa fallið víða á landinu sem staðfestir veikleika í snjóþekjunni en einnig hafa orðið nokkur snjóflóð af mannavöldum, engin slys. Einnig má búast við að spýjur falli þegar sól fer að skína á brekkur.

Líklegt er að margir haldi til fjalla til að njóta útiveru og veðurblíðunnar en snjóflóðavaktin hvetur fólk á ferð í fjalllendi að kanna snjóflóðaaðstæður áður en haldið er af stað. Hægt er að nýta sér hallakort Veðurstofunnar fyrir leiðarval og gefin er út snjóflóðaspá fyrir ákveðin svæði daglega á vef Veðurstofunnar.  Hafa skal þó í huga að spárnar gefa almenna mynd af spásvæðunum en gefa ekki upplýsingar um aðstæður í einstaka brekkum.

Veikleikar eru víða í kringum Höfuðborgarsvæðið og mælir snjóflóðavaktin sértaklega gegn því að ganga td ofar en Steinn í Esjunni og að fólk hugi vel að leiðarvali.

Útlit er fyrir ágætis páska og útivistaveður víða á landinu í dag, laugardag. Spár gera ráð fyrir austlægum áttum (3-10 m/s) og að mestu úrkomulaust en snjókoma á köflum á norðaustanverðu landinu og einhver él meðfram suðurströndinni. Hiti í dag er um eða undir frostmarki.

Á morgun, páskadag, er útlit fyrir norðaustan 8-13 m/s með éljum norðan og austanlands en að mestu hægari vindur og þurrt um landið suðvestanvert og þar má jafnvel búast við að sólin láti sjá sig á köflum.

Snjóflóðavaktin óskar landsmönnum gleðilegra páska og öruggrar útiveru!