17.03.2026
Nýtt
Á Norðanverðum Vestfjörðum er áfram óvissustig í gildi vegna snjóflóðahættu. Í dag er viðloðandi NA-hríð með hvassviðri til fjalla. Vitað er um eitt snjóflóð í dag sem féll ofan við iðnaðarhúsnæði á Ísafirði. Það ógnaði ekki byggð, en í öryggisskyni hefur verið tekin ákvörðun um að rýma atvinnuhúsnæði á reit 9 á Ísafirði sem er sami reitur og rýmdur var á sunnudag. Einnig er sorpmóttaka við Funa lokuð vegna snjóflóðahættu og fólk beðið um að viðhafa varúð á hafnarsvæðinu á Flateyri.
Enn er snjóflóðahætta á vegum víða á milli þéttbýliskjarna á þessu svæði og margir veganna á óvissustigi eða lokaðir. Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðri, upplýsingum á umferdin.is og facebook síðu lögreglunnar á Vestfjörðum.