BETA

Útlit fyrir að jökulhlaup í Múlakvísl sé í rénun

21.08.2026

Nýtt

Athugið

Útlit fyrir að jökulhlaup í Múlakvísl sé í rénun

Jökulhlaupið í Múlakvísl, sem hófst 18. ágúst, virðist nú vera í rénun. Dregið hefur úr bæði rafleiðni og rennsli frá því í gær og lítið gas mælist nú á svæðinu. Enn er þó of snemmt að segja til um hvort atburðinum sé lokið. Ferðamenn eru áfram hvattir til að sýna aðgát og yfirgefa svæðið verði þeir varir við einkenni sem gætu bent til gasmengunar. Veðurstofan mun áfram fylgjast náið með svæðinu og veita upplýsingar um framvindu eftir því sem tilefni er til. 

Blá lína sýnir þróun rafleiðni í Múlakvísl. Appelsínugular merkingar benda á fyrstu merki um hlaup og hámark þess.

Myndatexti: Línuritið sýnir rafleiðnimælingar í Múlakvísl við Þjóðveg 1 frá 17. ágúst þar til í morgun 21. ágúst.

Vatnshæð í ánni jókst ekki að ráði en áin dreifði úr sér sem benti til þess að rennsli hafi aukist. Vefmyndavél Veðurstofunnar á Láguhvolum sýnir þetta á meðfylgjandi myndum.  

Samanburðarmyndir úr vefmyndavélum frá Láguhvolum og Þjóðveg 1

Myndin vinstra megin sýnir Múlakvísl við Láguhvola og hægra megin við Þjóðveg 1 frá 18. - 21. ágúst