Snjóflóð síðustu daga og mat á aðstæðum

28.02.2026

Nýtt

Snjóflóð síðustu daga og mat á aðstæðum

Undanfarið hefur snjóað eða éljað og verið vindasamt víða um land. Í síðustu viku gekk hríð yfir sunnan- og vestanvert landið með talsverðri snjókomu sem féll þó víða á fremur bera jörð. Vitað er um nokkur nýleg flekaflóð á Vestfjörðum sem eru öll tiltölulega efnislítil en með nokkra útbreiðslu. Seinnipartinn 27.febrúar féll til að mynda um 300 m breitt flekaflóð í Kistufelli inn af Seljalandsdal við Ísafjörð þegar sólin tók að skína á hlíðina. Á SV horninu hefur borist tilkynning um eitt nýlegt lítið flóð undan skíðamanni í Skálafelli. Áfram má gera ráð fyrir éljagangi og frosti að mestu en um miðja næstu viku ganga skammvinn hlýindi yfir sem kemur líklega til með að styrkja snjóþekjuna um leið og frysta tekur á ný.

Flekaflóð að stærð 2 féll í Seljalandsdal 27. febrúar.

Á Norðurlandi var mikill léttur snjór til fjalla sem tók að skafa í vindfleka þegar fór að blása í breytilegri átt í síðustu viku. Vindflekar hafa því myndast í flestum viðhorfum. Nokkuð mörg nýleg flekaflóð hafa sést við Hlíðarfjall, á Öxnadalsheiði og á utanverðum Tröllaskaga. Snjógryfjur benda til óstöðugra vindfleka ofan við lagskipta snjóþekju með viðvarandi veikum lögum. Áfram er spáð éljagangi og kulda fram undir miðja næstu viku, sem getur stuðlað að frekari myndun kantaðra kristalla og viðhaldið veikleikum í snjóþekjunni.

Flekaflóð undir Hlíðarhrygg í Hlíðarfjalli sem féll 25. febrúar.

Á Austfjörðum hefur einnig verið vindasamt og snjó hefur skafið í fleka í flestum viðhorfum. Fá nýleg snjóflóð hafa þó sést sést og bendir það til þess að snjóþekjan sé víða farin að styrkjast. Á næstu dögum má þó búast við frekari vindflekamyndun í éljagangi og hvassri norðanátt austanlands.