17.04.2026
Nýtt
Eftir mikla snjósöfnun í mars þegar hver vetrarlægðin á eftir annarri gekk yfir landið er snjór að nálgast voraðstæður víðast hvar. Í byrjun síðustu viku kom fyrsta hlákan í þennan vetrarsnjó með hvössum suðlægum áttum og rigningu og hlýindum upp í fjallahæð og féllu allmörg snjóflóð þá í kjölfarið. Talsverð hlýindi hafa verið á landinu nú á aðra viku og hiti farið vel yfir frostmark til fjalla yfir daginn en kólnað á nóttunni. Spáð er heldur kólnandi veðri um helgina með hægviðri og björtu veðri og má búast við að snjór haldi áfram að styrkjast í dægursveiflu í hita næstu daga.
Viðvarandi veik lög
Þegar mesta snjósöfnunin var í mars gengu nokkrar stórar snjóflóðahrinur yfir í kjölfarið, einkum á utanverðum Tröllaskaga og á norðanverðum Vestfjörðum og einnig á Austfjörðum um tíma. Það er nokkuð algengt að snjór verði óstöðugur í gegnum óveður og fyrstu dagana á eftir á meðan snjór er að sjatna og styrkjast. Flest snjóflóðin í mars eru talin hafa fallið vegna tímabundinna veikleika í vindflekunum en einnig sáust greinileg viðvarandi veik lög í gryfjum dýpra í snjónum og ekki ósennilegt að einhver snjóflóðanna hafi fallið á þessum veikleika, m.a. þykkt flekaflóð í Hrappsstaðaskálum norðan við Hlíðarfjall í Eyjafirði 7. apríl. Seinnipart miðvikudagsins 15. apríl féll einnig nokkuð efnismikið vott flekaflóð ofan Funa á Innri Kirkjubólshlíð sem hefur að öllum líkindum fallið á gömlum veikleika djúpt í snjónum. Aðstæður ofan við Funa eru taldar hafa verið staðbundnar og ekki einkennandi fyrir svæðið í heild en þar var óhlaupinn, óstöðugur fleki efst í upptakasvæðinu eftir stærra flóð sem féll 29. mars.
Ef þessir dýpri veikleikar eru enn til staðar ættu þeir að brotna niður næstu daga þegar snjórinn verður jafnhita í gegn. Einnig ætti að þurfa mikið álag til að koma flóðum af stað.
Helsta hættan fyrir fólk sem ferðast um brattar brekkur eru vot snjóflóð seinnipart dags í bröttum brekkum sem vísa á móti sól.

Vott flekaflóð sem féll ofan Funa við Ísafjörð, seinnipart 15. apríl

Flekaflóð sem féll í Hrappsstaðaskálum 7.apríl. Flóðið virðist hafa brotið sig niður á dýpri veikleika í snjónum.