12.03.2026
Nýtt
Allhvöss norðlæg átt með snjókomu og skafrenningi hefur verið ríkjandi á Vestfjörðum í dag fimmtudag.
Þónokkur snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum.
Ekki er talin hætta í byggð sem stendur en snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist náið með aðstæðum.
Á utanverðum Tröllaskaga hefur einnig snjóað talsvert en í fremur hægum vindi.
Veðurspár gera ráð fyrir batnandi veðri á Vestfjörðum á morgun föstudag, en viðvarandi éljagangi á utanverðum Tröllaskaga.
Vestfirðir
Ratsjá Veðurstofunnar hefur greint þrjú snjóflóð ofan Flateyrar í dag, eitt í Innra‑Bæjargili og tvö í Skollahvilft. Stærstu tvö snjóflóðin hafa náð u.þ.b. niður að vörnum, sjá meðfylgjandi myndir. Snjóflóðahætta er á Flateyrarvegi og veginum verður lokað kl. 20 í kvöld. Mörg snjóflóð hafa fallið á veginn um Súðavíkurhlíð og hefur vegurinn verið lokaður síðan fyrir hádegi. Þá féll snjóflóð á veg í Súgandafirði, utan við Suðureyri. Líklegt er að fleiri snjóflóð hafi fallið á svæðinu en þar sem skyggni er takmarkað koma þau væntanlega ekki í ljós fyrr en birtir á föstudag.
Veðurspár gera ráð fyrir að veðrið nái hámarki seint í kvöld eða nótt. Þá má búast við að snjóflóðahætta aukist á veginum um Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Ekki er talin hætta í byggð sem stendur, en snjóflóðavaktin fylgist áfram með aðstæðum og er í góðu sambandi við lögreglu á svæðinu og Vegagerðina.

Ratsjármynd af snjóflóðinu í Innra-Bæjargili

Ratsjármynd af stærra snjóflóðinu í Skollahvilft
Tröllaskagi
Talsvert hefur snjóað á utanverðum Tröllaskaga, sérstaklega á Siglufirði. Vindur hefur þó verið mun hægari en á Vestfjörðum. Varað er við snjóflóðahættu á Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarvegi. Ekki hafa borist fréttir af snjóflóðum á utanverðum Tröllaskaga í dag, en snjóflóð féllu í Hlíðarfjalli við Akureyri.