Snjóflóðaaðstæður í vikunni og veðrið framundan

05.03.2026

Nýtt

Snjóflóðaaðstæður í vikunni og veðrið framundan

Vikan hefur verið stormasöm og umhleypingakennd á landinu öllu. Á mánudag gekk á með hríðarveðri á Norður- og Austurlandi með gulum og appelsínugulum viðvörunum. Snjóflóð féllu við Ólafsfjarðarveg og í norðanverðum Seyðisfirði til fjalla. Aðfaranótt þriðjudags skóf og snjóaði í hvassri V-átt á Austfjörðum og snjóflóð féllu ofan byggðar við Neskaupstað en einnig féll lítil spýja yfir veginn undir Grænafelli í Fagradal.

Næsta lægð tók við á þriðjudagskvöld, öllu hlýrri og víðáttumeiri en sú fyrri. Lægðin kom inn á landið með töluverðum vindi og hlýindum á sunnanverðu landinu. Snjóflóðahætta skapaðist við nokkra vegi í mörgum landshlutum en myndarlegt snjóflóð féll á veginn um Raknadalshlíð seinnipart þriðjudags og þrjú krapaflóð féllu á veg í sunnanverðum Fáskrúðsfirði yfir nóttina.

Tilkynnt hefur verið um nokkur snjóflóð víða um land í dag, þá sérstaklega í Innanverðum Eyjafirði og á Norðanverðum Vestfjörðum. Vélsleðar settu af stað nokkuð víðáttumikið snjóflóð á nýja snjónum nærri skíðasvæðinu í Tungudal. Einnig hafa snjóflóð fallið í Kaldbak, Eyjafirði.

Veðrið og snjóþekjan næstu daga

Í dag, fimmtudag, éljar lítillega um mestallt landið en aðfaranótt föstudags ganga skil inn á landið með úrkomumiklu skoti í hvössum, suð- og austlægum áttum. Mesta úrkoman verður á sunnanverðum Vestfjörðum, Vesturlandi og Austfjörðum. Þetta veður gengur hratt yfir. Á föstudag er áfram hvöss sunnanátt víða með rigningu á láglendi til að byrja með en breytist síðar í snjókomu víðast hvar með kvöldinu. Á Austfjörðum ver búist við nokkurri rigningu, einnig til fjalla. Sjá hér nánari útskýringu á skriðuaðstæðum á morgun.

Búast má við mikilli vindflekamyndun til fjalla í flestum landshlutum en stífar suðlægar áttir eru ríkjandi næstu dagana. Stífir vindflekar munu því líklega myndast í sunnan-hvassviðri laugardagsins, þá helst á norðurvísandi hlíðum. Hlýindi á Austfjörðum föstudagskvöld munu veikja snjóþekjuna um stund en þegar frystir aftur má búast við að snjóþekjan styrkist töluvert.

Enn finnast veikleikar á Tröllaskaga og í Eyjafirði og snjóflóðaspáin gerir áfram ráð fyrir töluverðri snjóflóðhættu.

Fólk á ferð til fjalla skal varast brattar hlíðar þar sem vindflekar hafa myndast, brattar brúnir við hryggi og kúptar hlíðar þar sem snjór hefur safnast. Mikilvægt er að huga að vönduðu leiðarvali.