01.04.2026
Nýtt
Eftir rólegan og snjóléttan vetur um mest allt land minnti veturinn á sig með kröftugum lægðum sem komu hver á eftir annarri. Þessar lægðir hafa farið hratt yfir landið með hvössum vindi úr flestum vindáttum og talsverðri ofankomu. Það hefur bætt mikið á snjó um land allt. Spár gera ráð fyrir að það bæti áfram á snjó næstu daga en mun skaplegra veðri með góðviðrisköflum á milli.
Þegar nýr snjór bætist við sem nær að mynda samhangandi fleka þarf að gera ráð fyrir að hann geti verið óstöðugur fyrst um sinn, en með tímanum styrkist snjórinn svo að öllu jöfnu þegar hann sjatnar og ummyndast. Í sumum tilfellum geta veikleikar viðhaldist lengur, þá sem viðvarandi veikt lag, en þú myndast t.d. í kringum frost/þýðu lög í snjónum eða við lagmót á eldra hjarni.
Á þessum árstíma flykkist fólk til fjalla að stunda ýmsa útivist sem tengist fjöllum og snjó. Vill snjóflóðavakt Veðurstofunnar minna á þá hættu sem fylgir því að ferðast um brettar brekkur að vetrarlagi og að fólk getur sett af stað snjóflóð þrátt fyrir að lítil eða engin hætta sé á snjóflóðum af náttúrulegum orsökum. Fólk ætti alltaf að vera með snjóflóðaýli, skóflu og stöng ef farið er um snjóflóðalandslag.
Snjóflóðavaktin vill líka minna á tilkynningarform þar sem hægt er að skrá upplýsingar um snjóflóð. Þessar tilkynningar eru kærkomnar til að bæta snjóflóðaspána en einnig mikilvægar fyrir almenning til að vita af snjóflóðavirkni á því svæði sem það hyggst fara á.

Mynd af snjóflóði sem vélsleði setti af stað við Skriðu, skammt frá Skjaldbreið 14.mars. (Tilkynning frá almenningi)