15.03.2026
Nýtt
Nokkur atvinnuhús undir Seljalandshlíð á Ísafirði hafa verið rýmd vegna snjóflóðahættu og óvissustig vegna snjóflóðahættu er í gildi á norðanverðum Vestfjörðum. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er líka í gildi á Mið-Norðurlandi. Norðaustan hvassviðri og éljaveður hefur verið í nótt á norðan- og norðvestanverðu landinu.
Spáð er áframhaldandi hvassviðri og kólnandi veðri í dag og slyddu eða snjókoma með köflum á láglendi. Til fjalla er spáð snjókomu og þar má búast við skafrenningi í dag og næstu daga sem safna ætti snjó í upptakasvæði snjóflóða. Það bætti mikið á snjó til fjalla í norðan- til norðvestanátt frá því á miðvikudag í síðustu viku, sérstaklega á annesjum á Tröllaskaga. Aðfaranótt laugardags 14. mars féll stórt snjóflóð úr Selskál skammt utan við Siglufjörð, yfir þjóðveginn og í sjó fram en veginum hafði verið lokað kvöldið áður vegna snjóflóðahættu.
Síðan síðdegis í gær, laugardag, hefur orðið vart við snjóflóð úr Ósbrekkufjalli norðan Ólafsfjarðar, úr gili skammt innan Flateyrar, úr norðurhlíð Súgandafjarðar og nokkur flóð hafa fallið í Skutulsfirði og í Syðridal við Bolungarvík. Búast má við tilkynningum um fleiri snjóflóð þegar betur sést til fjalla síðar í dag. Á snjóflóðasíðum Veðurstofunnar má fylgjast með uppfærðum snjóflóðatilkynningum.
Vegir um Súðavíkurhlíð og til Flateyrar eru lokaðir en óvissustig er í gildi fyrir Siglufjarðarveg, veginn um Ólafsfjarðarmúla og veginn undir Raknadalshlið.
Ferðafólk og vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát þegar farið er um svæði þar sem snjóflóð geta fallið. Einnig er ástæða til þess að íbúar á þekktum snjóflóðasvæðum í dreifbýli sýni aðgæslu þar sem snjóflóð geta valdið slysum eða tjóni.